04.02.2011
Fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar kl. 16:30. Þar ætlar Helga Hauksdóttir,
skólastjóri í Oddeyrarskóla á Akureyri að greina frá niðurstöðum rannsóknar um innleiðingarstarf
nýútskrifaðra kennara í grunnskólum. Fundurinn er haldinn í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við
Norðurslóð í stofu L101 og er öllum opinn.
Eigindleg rannsókn, unnin á vormisseri 2010 sem 30 ECTS eininga lokaritgerð til M.Ed. prófs við Menntavísindasvið HÍ, þar sem sjónum er
beint að innleiðingarstarfi nýútskrifaðra kennara í grunnskólum.
Gagna var aflað með hálfopnum viðtölum við fjóra kennara á 1. eða 2. starfsári og fjóra skólastjóra við
grunnskóla. Einnig var rætt við tvo kennara sem höfðu hætt kennslu í skólanum sínum eftir nokkur ár í kennslu.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stjórnendur grunnskóla hafi fullan vilja til að taka vel á móti
nýútskrifuðum kennurum. Innleiðingarferlið virðist þó oft ómarkvisst og fela helst í sér kynningu á ýmsum hagnýtum
upplýsingum um skólastarfið í upphafi skólaárs og að útvega nýliðanum leiðsagnarkennara. Nýju kennararnir sakna þess
að hafa ekki fengið meiri þjálfun á vettvangi í kennaranáminu og þeir segja að skipulag leiðsagnarkennslu þurfi að vera markvissara.
Þeir óska eftir auknu samstarfi, umræðum og endurgjöf á starf sitt og meiri nálægð skólastjóra.
19.01.2011
Fræðslufundinum með Hildi Betty Kristjánsdóttur hefur verið frestað til 5. maí.
Fræðslufundur verður haldinn fimmtudaginn 5. maí kl. 16:30. Þar flytur Hildur Betty Kristjánsdóttir, náms- og
starfsráðgjafi, verkefnastjóri hjá SÍMEY fyrirlestur sem byggir á niðurstöðum rannsóknar um tengsl bók-, list og verknáms
á unglingastigi. Fundurinn er haldinn í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð í stofu L101 og er
öllum opinn.
Umræða um stöðu list- og verkgreina hefur farið fram á Íslandi um alllangt skeið. Hún hefur einkennst af því hvernig auka megi
vægi þeirra innan skólakerfisins. Fram kemur í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 að ráðherra lætur grunnskólum í té
aðalnámskrá og í 24. gr. er lögð áhersla á jafnvægi milli bók- og verklegs náms.
Markmið rannsóknarinnar var að öðlast skilning á tengslum bók-, list- og verknáms á unglingastigi grunnskóla með því
að kanna viðhorf viðmælenda sem hafa faglega þekkingu, reynslu og skoðanir á þessu sviði. Eftirfarandi spurning lá til grundvallar; Hvaða
möguleikar eru á að viðhafa val á milli bók-, list- og verknáms á unglingastigi?
Í kynningunni verður gerð grein fyrir fræðilegum þáttum sem lagðar voru til grundavallar í rannsóknninni og niðurstöður
rannsóknarinnar kynntar.
01.11.2010
Fræðslufundur verður haldinn
fimmtudaginn 4. nóvember kl. 16:30. Þar flytur Drífa Þórarinsdóttir, deildarstjóri á leikskólanum Kiðagili á
Akureyri fyrirlestur um viðmót kennara og áhrif þess á námsumhverfi barna í leikskólum. Fundurinn er haldinn í
húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð í stofu L101 og er öllum opinn.
Megintilgangur verkefnisins var að kanna viðmót leikskólakennara, áhrif þess á námsumhverfi barna og skilning kennara á eigin
viðmóti. Þá var kannað hvort viðmót kennara geti verið háð agastefnu skólans og starfsreynslu kennara. Kveikjan að verkefninu var
áhugi höfundar á samskiptum kennara og barna í skólum. Ef litið er til rannsókna á samskiptun kennara og barna í skólastofunni
þá hefur komið fram að viðmót kennara skiptir miklu máli og hefur áhrif á nám og þroska barna. Í málstofunni verður
stuttlega gerð grein fyrir fræðilegum þáttum sem lagðir voru til grundvallar í rannsókninni og niðurstöður rannsóknarinnar
kynntar.
13.10.2010
Fræðslufundur verður
haldinn fimmtudaginn 14. október kl. 16:30. Þar flytur Anna Kolbrún Árnadóttir, deildarstjóri sérkennslu í Síðuskóla á
Akureyri fyrirlestur um stjórnun og skipulag kennslu barna með sérþarfir á yngsta stigi grunnskólans. Fundurinn er haldinn í húsnæði
Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð í stofu L101 og er öllum opinn.
Á Íslandi starfa grunnskólar eftir hugmyndafræðinni um skóla án aðgreiningar. Lög og reglugerðir styðja við hugmyndafræðina
ásamt skólastefnum sveitarfélaga. Hugmyndafræðin um skóla án aðgreiningar gerir kröfur um að skólar og kennarar aðlagi
bæði námsefni og kennsluhætti að stefnunni.
Á fundinum verður sagt frá rannsókn sem ætlað var að varpa ljósi á hvernig stjórnun og skipulagi kennslu er háttað á
yngsta stigi grunnskólanna á Akureyri og að skoða hvort stjórnun og skipulag kennslunnar samræmist íslenskum lögum, alþjóðlegum
reglugerðum sem Íslendingar eru aðilar að og skólastefnu Akureyrarbæjar.
Aðferðin við rannsóknina fólst í hálfopnum viðtölum sem sem tekin voru á tímabilinu nóvember 2009 til febrúar 2010.
Þátttakendur í rannsókninni voru fjórir sérkennarar, fjórir umsjónarkennarar og fjórir skólastjórar.
07.12.2009
Fjórða tölublað þriðja árgangs af vefritinu Byrjendalæsi er komið út. Blaðið er að
þessu sinni helgað starfi í skólunum. Þar er að finna umfjöllun um aukið sjálfstæði nemenda í vinnubrögðum auk efnis sem
ráðgjafar hafa aflað á heimsóknum sínum í skóla og kennarar hafa sent ritstjórn.
01.10.2009
Skólaþróunarsvið hug- og félagsvísindasviðs Háskólans á Akureyri stendur að venju fyrir fræðslufundum á skólaárinu 2009-2010. Áhersla er lögð á að kynna nýjar rannsóknir á sviði uppeldis- og menntamála á fundunum eða farsælt þróunarstarf í skólum. Fundirnir eru klukkutíma langir, hefjast kl. 16:30 í Þingvallastræti 23 á Akureyri og eru öllum opnir. Sérstaklega eru kennarar, skólastjórar, foreldrar, háskólanemar og aðrir þeir sem áhuga hafa á skólamálum boðnir velkomnir. Form fundanna er með þeim hætti að framsögumaður talar í 40 mínútur en eftir það eru leyfðar fyrirspurnir og umræður.
09.03.2009
Það var handagangur í öskjunni þegar unnið var að því á vegum Skólaþróunarsviðs að ganga frá efni í 35 bókaskjóður þróunarverkefnisins Fágæti og furðuverk og koma þeim út í fyrsta skólann sem tekur við verkefninu. Í hverri skjóðu er að finna:Bók eða fræðilegt efni fyrir börn um eitthvert tiltekið þema.Tímarit fyrir fullorðna um sama efni.Verkefni fyrir börn sem tengist þemanu.Leikföng eða hlutir sem tengjast þemanu.Samskiptabók fyrir nemandann til að nota við mat á verkefninu og fyrir athugasemdir foreldra.
17.02.2009
Fyrsta tölublað þriðja árgangs af Byrjendalæsisblaðinu er nú komið út og má nálgast blaðið undir hlekknum Útgefið efni, hér til vinstri á síðunni.
29.01.2009
Byrjendalæsisblaðið hefur verið gert aðgengilegt öllum á vef Skólaþróunarsviðs. Undir hlekknum Útgefið efni hér til vinstri er hægt að komast í öll hefti blaðsins.
05.12.2008
Hera Þöll samdi þessa jólasögu þegar hún var 11 ára og nú tveimur árum síðar gáfu hún og foreldrar hennar góðfúslegt leyfi til handa Skólaþróunarsviði Háskólans á Akureyri að nýta söguna í þágu Byrjendalæsis.