Snjallari saman
Upplýsingatækni og miðlun í skólastarfi
Yfir 200 manns tóku þátt í vorráðstefna um menntavísindi á vegum miðstöðvar skólaþróunar HA var haldin í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 16. apríl 2016. Ráðstefnan vari tileinkuð notkun upplýsingatækni og miðlunar í skólastarfi. Markmiðið var að varpa ljósi á gildi stafrænnar tækni í skólastarfi og hvernig hægt er að nota tæknina á fjölbreyttan hátt til stuðnings námi og kennslu. Efni ráðstefnunnar var sniðið að öllum skólastigum. MSHA þakkar öllum þeim sem komu að ráðstefnunni fyrir þátttökuna.
Myndir frá ráðstefnunni
Aðalfyrirlesarar:
Auk aðalfyrirlestra voru yfir 30 erindi á málstofum þar sem fjallað var um þróun og notkun tölvu-, upplýsingatækni og miðlun í skólastarfi einnig var boðið upp á smiðjur þar sem ráðstefnugestum gafst tækifæri til að sjá, kynnast og prófa verkfæri sem tengjast tölvu- og upplýsingatækni.
Ráðstefnan var styrkt af Verkefnasjóði um styrk Akureyrarbæjar til Háskólans á Akureyri.