Fréttir

Haustdagar grunnskólanna við Eyjafjörð

Haustdagar grunnskólanna við Eyjafjörð voru haldnir 13. og 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri þar komu saman starfsfólk og stjórnendur úr 16 grunnskólum á svæðinu. Haustdagarnir hafa aldrei verið fjölmennari en um 300 kennarar, stjórnendur og starfsfólk grunnskóla tóku þátt. Boðið var upp á áhugaverða fyrirlestra og námskeið um ýmis efni sem tengjast námi og kennslu, farsæld og velferð nemenda og starfsfólks í grunnskólum.

Byrjendalæsisnámskeið 2024

Námstefna í Byrjendalæsi

Læsisráðstefna í HA 2024 – Hvað er að vera læs?

Ráðstefnan Hvað er að vera læs? Laugardaginn 14. september Ráðstefna um menntavísindi á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Miðstöðvar skólaþróunar verður haldin í Háskólanum á Akureyri 14. september 2024. Á ráðstefnunni verður fjallað um læsi í víðum skilningi og hvernig huga þarf að öllum þáttum læsis í kennslu s.s. lesskilningi, ritun, munnlegri og skriflegri tjáningu og miðlun. Auk aðalfyrirlesara verða málstofuerindi og vinnustofur þar sem kynntar verða aðferðir og reifuð ýmis mál er lúta að læsi. Ráðstefnan er ætluð kennurum á öllum skólastigum og verður sérstaklega horft til þess að viðfangsefni ráðstefnunnar hafi hagnýtt gildi fyrir kennara.