Vorráðstefnan - Vísindi í námi og leik
Laugardaginn 30. mars 2019 verður efnt til ráðstefnunnar Vísindi í námi og leik í samstarfi Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri og Málþings um náttúrufræðimenntun*. Á ráðstefnunni verður fjallað um nám og kennslu í náttúruvísindum, stærðfræði og tækni, þ.m.t. upplýsingatækni, í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Ráðstefnan er ætluð kennurum og starfsfólki í leik-, grunn-, og framhaldsskólum og sérstaklega er horft til þess að umfjöllunarefni hafi hagnýtt gildi í skólastarfi. Auk aðalfyrirlestra og pallborðsumræðna verða málstofuerindi, vinnustofur og veggspjöld þar sem reifuð verða ýmis mál er lúta að námi og kennslu með sérstakri áherslu á fyrrnefnd viðfangsefni.
Upplýsingar um ráðstefnuna má einnig finna á Facebook-síðum MSHA og Náttúrutorgs og á Náttúrutorgi - natturutorg.is
Menntabúðir í Hrafnagilsskóla
Í tengslum við ráðstefnuna verður boðið upp á menntabúðir í Hrafnagilsskóla Í Eyjafjarðarsveit föstudaginn 29. mars frá klukkan 15:00-16:45. Yfirskrift menntabúðanna er: Vísindi í námi og leik. Í menntabúðunum verður lögð áhersla á skapandi kennsluhætti á öllum aldursstigum frá leikskóla til grunnskóla. Ókeypis er á viðburðinn og við hvetjum alla til að mæta.
Dagskrá ráðstefnunnar
Við vekjum athygli ráðstefnugesta á því að flestir eiga rétt á að sækja um endurgreiðslu á ráðstefnugjöldum og ferðakostnaði til stéttarfélaganna:
Félag leikskólakennara
Félag grunnskólakennara
Félag framhaldskólakennara
BHM háskólakennarar
*Að baki Málþings um náttúrufræðimenntun standa ýmis félög og samtök, má þar nefna: Samlíf - samtök líffræðikennara, Félag raungreinakennara, NaNO - Náttúruvísindi á nýrri öld, GERT, RAUN – Rannsóknar-stofu um náttúrufræðimenntun, Flöt - samtök stærðfræðikennara og Félag leikskólakennara. Að auki koma Menntavísindasvið HÍ og Kennaradeild HA að ráðstefnunni.