Tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna

TILNEFNINGAR TIL ÍSLENSKU MENNTAVERÐLAUNANNA

Vekjum athygli á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi með börnum og unglingum!

Opnað hefur verið fyrir tillögur um tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna sem veitt verða í nóvember fyrir framúrskarandi skóla- eða menntaumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.

Hægt er að tilnefna til 1. júní!

Sjá nánar á: https://skolathroun.is/menntaverdlaun/

Vakin er athygli á því að hægt er að fá ráðgjöf og aðstoð við tilnefningar með því að hafa samband við verkefnisstjóra verðlaunanna, Ingvar Sigurgeirsson, í síma 896 3829 eða í tölvupósti: ingvars(hja)hi.is