Kennarar á samræðuþingi
Fimmtudaginn 12. maí var haldið samræðuþing í Háskólanum á Akureyri. Á þinginu voru saman komnir kennarar sem hafa sýnt hafa samræðum í skólastarfi áhuga og unnið að því að efla samræður til náms með nemendum sínum. Upphaflega var þingið hugsað sem eins konar uppskeruhátíð fyrir þá kennara sem unnið hafa að rannsóknar- og þróunarverkefninu Hugleikur - samræður til náms sl. tvö ár og ákvað hópurinn að opna þingið og bjóða öllum þeim sem áhuga hafa á samræðum að koma og taka þátt. Alls voru þinggestir ásamt fyrirlesurum 43. Kennararnir komu frá 8 skólum á Akureyri og af öllum skólastigum. Þingið tókst vel og þökkum við öllum þeim sem komu kærlega fyrir þátttökuna.
Myndir frá þinginu.
Í vor eru tvö ár liðin frá því að þróunarverkefnið Hugleikur samræður til náms hófst. Markmið verkefnisins er að læra um samræðuaðferðir og auka færni þátttakenda í að nota aðferðirnar á vettvangi með nemendum, í því skyni að efla hæfni þeirra til að draga ályktanir og skapa merkingu, spyrja rannsakandi og gagnrýninna spurninga og taka upplýsta afstöðu í samræðum. Nú er fyrsta áfanga verkefnisins lokið og af því tilefni bauð þróunarhópurinn, kennaradeild HA og miðstöð skólaþróunar HA til þingsins sem helgað var samræðum í skólastarfi.
Dagskrá þingsins
|
14.00
|
Setning
|
14.15
|
Lizzy Lewis, Verkefnisstjóri, SAPERE www.sapere.org.uk Ritari, ICPIC (The International Council of Philosophical Enquiry with Children) og fyrrum forseti samtakana www.icpic.org
|
15.00
|
Kaffihlé
|
15.10
|
Léttir upphitunarleikir og samræðuæfingar
|
15.30
|
Brynhildur Sigurðardóttir, heimspekikennari og skólastjóri Garðaskóla
|
16.15
|
Finnur Friðriksson, dósent við kennaradeild HA
|
17.00
|
Þinglok
|
Þingið var endurgjaldslaust.
Fyrirhugað er að bjóða skólum verkefnið skólaárið 2016-2017 og rannsaka árangur þess. Þeir skólar sem áhuga hafa á því að vera með næsta skólaár vinsamlega hafið samband (sz@unak.is) og fáið nánari upplýsingar.
Verkefnið Hugleikur samræður til náms er styrkt af Háskólasjóði KEA, Rannsóknasjóði HA og samræðuþingið var styrkt af Verkefnasjóði um styrk Akureyrarbæjar til Háskólans á Akureyri.