Menntamálastofnun og Miðstöð skólaþróunar halda læsisráðstefnu í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 14. september þar sem yfirskriftinn er: Hvað er að vera læs? Ráðstefnunni er ætlað að svara spurningunni hvernig skapa megi æskileg skilyrði í námi sem styðja við gott læsi í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Því auglýsum við eftir erindum á málstofur og efni fyrir vinnustofur frá leik-, grunn-, framhalds- og háskólakennurum, læsisfræðingum, náms- og kennsluráðgjöfum, skólastjórnendum og öðrum áhugasömum aðilum um efni ráðstefnunnar. Einkum er leitað eftir efni sem hefur hagnýtt gildi fyrir kennara.
Aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar verða:
-
Bragi Valdimar Skúlason fjölmiðlamaður, orðarýnir og orðasmiður.
-
Guðmundur Engilbertsson deildarforseti við kennaradeild HA sem mun fjalla um læsi á stigi djúp- og yfirfærslunáms á efri skólastigum.
Auk þrískiptra erinda eftir skólastigum:
-
Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við heilbrigðisvísindasvið HÍ sem mun fjalla um stöðu fjöltyngdra leikskólabarna á Íslandi.
-
Auður Soffíu Björgvinsdóttir aðjúnkt og doktorsnemi við menntavísindasvið HÍ og Guðbjörg R. Þórisdóttir læsisráðgjafi hjá MMS sem munu fjalla um mikilvægi sveigjanleika í heimalestrarþjálfun út frá stöðu nemenda í lestri.
-
Ívar Rafn Jónsson lektor við HA sem mun fjalla um læsi framhaldsskólanema á orðræðu og hugtakanotkun sem er við lýði í námsmati. Til viðbótar verður svo fjöldi mál- og vinnustofa sem ráðstefnugestir geta valið sig á.
Frestur til að senda inn lýsingu á erindi eða vinnustofu er til 5. apríl 2024.
Smelltu hér til að senda inn erindi.